Janúarballið
20. janúar 2007 klukkan 02:02
Það skal tekið fram að myndirnar sem voru settar inn núna verða með þeim síðustu hér inná www.heidrun22.bloggar.is . Því að nú hefur bæst inn ný gjellusíða í heiminn en hún ber nafnið www.belles.central.is . Héðan í frá fara allar myndir Heiðrúnar þar inn. En smá skrif
Einsog flest allir vinir okkar vita þá var Janúarball MK einmitt í gær. Að mínu mati skemmtilegasta MK ball skólaársins. Ég opnaði húsið fyrir fólkinu sem ætlaði á MK ballið og bið strákana sem fóru á MH ballið fyrirgefningar fyrir að hafa ekki getað boðið þeim. Þeir sem mættu voru eftirfarandi: Anna Fanný, Elís, Heiðrún, Ingvar, Lilja, Svava, Torfi töff (húseigandi) og Þorsteinn. Það var mikið talað og farið í skrýtna spilaleiki en það sem stóð kannski mest uppúr var það að Þorsteini langaði til þess að prófa að kyssa strák! Síðan var haldið á ballið rúmlega 23.00 og leigubílstjórar voru Svava og faðir minn og þökkum við kærlega fyrir okkur!
Inná ballið var svo komið og stemningin var í hámarki. Náðum síðustu lögum Dj-ins og Svitabandið stigu svo fljótlega á svið. Alveg hreint magnaðir drengir og þeir hafa tekið miklum framförum síðan ég sá þá síðast í 10.bekk. Eina neikvæða sem ég sá við ballið var hve stutt það var en það var bara til 01.00 og er það frekar leiðinlegt miðað við það að þau voru til 03.00 í gamla daga. En þið eruð líklega komin með leiða af orðum mínum og þess vegna ætla ég að hætta núna..
Heiðrún snillingur tók auðvitað myndir, þær eru þó fáar en fyrir vikið góðar.
Kær kveðja
Torfi Töff..

Heiðrún Hafliðadóttir
Engin athugasemd
Engin athugasemd